Hugsanir Heidu

Velkomin(n) til Heidu

12.11.2007 20:52:00 / bheida

Gegnum rifurnar eftir Sirrý sig.

Ég mæli með: Gegnum rifurnar eftir Sirrý sig.


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.11.2007 20:33:41 / bheida

Straujárn og straubretti!!!!

Vantar straujárn og straubretti sem fyrst. Hvernig straujárn er best að kaupa og hvar er það hagkvæmast??

Hmmm... veit ekkert um straujárn en held ég kunni að strauja.

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.11.2007 21:32:05 / bheida

Ég mæli með.... bókinni GEGNUM RIFURNAR - sem er væntanleg í verslanir innan skamms.

 

Bókin hennar mömmu, GEGNUM RIFURNAR, fer alveg að koma út..

Það styttist og styttist...

By the way fyrir þá sem ekki vita, þá er mamma mín  BESTI rithöfundur í heimi, og hún heitir SIRRÝ SIG.

Mæli með bókinni... læt vita þegar hún kemur í verslanir.

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

30.10.2007 10:45:35 / bheida

Stolið frá Eyrúnu sætu.... copy - paste

Hérna er eitthvað fyrir kvenfólkið að hlæja að...

Ný skilgrein frumefni


Frumefni: Karl


Hvar það finnst: Oftast á kaffihúsum, börum, bjórkrám, á öðrum endanum á vindli eða veiðistöng. Sjaldan nálægt börnum.


Eðlisþyngd og form: 70 - 140 kg. breiðast um miðjuna.


Eðliseiginleikar: Þenst út í nálægð peninga og valda, skreppur saman í grennd við ryksugu og gólfskrúbb. Fuðrar upp við strokur og hól, slokknar á því við umræður um jafnrétti og kvenfrelsi.


Efniseiginleikar: Dregst að fokdýrum, dauðum hlutum, tækjum og tólum. Ofsafengin viðbrögð við skorti á umönnun og eftirtekt. Ósjálfbjarga án kvenna.


Notagildi:
Nauðsynlegt (ennþá0 til æxlunar, en ekki til teljandi gagns að öðru leiti.

Varúð: Getur eitrað líf kvenna ef þær eru ekki vel á verði.


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.10.2007 10:52:10 / bheida

Hvað finnst þér ?

 

Ýtir bókin 10 litlir negrastrákar undir fordóma?

ALLIR AÐ SVARA, TAKK


» 5 hafa sagt sína skoðun

22.10.2007 13:12:41 / bheida

Komin tími til

 

Þá er best að blogga..

Ég er í skólanum, er að fara að flytja fyrirlestur... bara eftir nokkrar sek...

Ekki svo gaman...

 Búin að fá nokkrar einkunnir úr verkefnum... hmmm... látum okkur sjá:

 Barnabókmenntir 3 * 8,5 og 7,5

Náttúra og umhverfi 7,5

Leikskóli fyrir alla 1 ?* 7,5

 Hmmm..... hvað á ég að segja meira..

Já, ég átti afmæli í gær.. ogó margir mundu eftir því. Ari hélt ogó flotta ræðu í tilefni afmælis míns og Guðna og svo var skálað í freyðivín...

Ari og Svana alveg að fara að yfirgefa mig... snökt, snökt. Mun sakna þeirra mikið...

Bæjó... pæjó...


» 6 hafa sagt sína skoðun

17.10.2007 00:51:57 / bheida

Allir að leggjast á eitt

Berst fyrir lífi tveggja ára gamallar dóttur sinnar

 Ragna Erlendsdóttir er 27 ára gömul, einstæð, tveggja barna móðir. Fyrir 12 dögum greindist Ella Dís, tæplega tveggja ára gömul dóttir hennar með SMA. Það er lífshættulegur og ólæknandi hrörnunarsjúkdómur sem ræðst á mænuna og veldur lömun.

„ Ég er nýbúin að heyra fréttirnar og er eiginlega ekki enn búinn að ná mér eftir þær,"segir Ragna, þegar blaðamaður Vísis slær á þráðinn til hennar. "Mig hafði grunað þetta í nokkurn tíma. Svo eftir 18 mánaða sprautuna fór ég með hana í skoðun og Pétur Lúðvíksson taugalæknir greindi hana með SMA," bætir hún við. Ragna á enn eftir að fá staðfest hvaða tegund SMA dóttir hennar ber en um fjögur afbrigði getur verið að ræða

Ragna segir að stutt sé síðan hún hafi fengið að vita hvers eðlis veikindi dóttur hennar væru. Hún taki því einn dag í einu og sé að reyna að ná áttum. „Ég er eiginlega enn að vona að þetta sé martröð og ég eigi eftir að vakna," segir Ragna. Hún segir að um leið og læknirinn hafi sagt henni fréttirnar hafi hún haft samband við fólk í svipuðum aðstæðum og hún. Það hafi veitt henni mikinn styrk. Hún segist einnig hafa fengið mikla hjálp frá Umhyggju, félagi til stuðnings langveikum börnum. „Svo hefur fjölskylda mín og vinir mínir stutt mig mikið," segir Ragna.

Ragna hefur að mörgu að huga þessa dagana. Þær mæðgurnar þurfa að læra að lifa með SMA. Ragna þarf að finna nýja íbúð á jarðhæð fyrir sig og börnin sín vegna þess að hún býr á efstu hæð og það getur orðið erfitt þegar fram í sækir. Svo þarf hún að kaupa hjálpartæki sem Ella Dís verður að nota. „Fyrir tveimur vikum vissi ég ekki hvað SMA var. Nú þarf ég að aðlagast þessu öllu saman," segir Ragna. Hún segir að sér finnist mjög erfitt að venjast tilhugsuninni um að kaupa hjálpartæki fyrir dóttur sína.

Svo reyna þær mæðgurnar að halda áfram að lifa eðlilegu lífi eins og læknir hefur ráðlagt þeim. „Ella Dís er hjá yndislegri dagmömmu og hún mun halda áfram að fara til hennar. Svo mun ég sækja um í leikskóla fyrir hana, en þar þarf hún að fá mikinn stuðning," segir Ragna.

Barátta Rögnu fyrir lífi og bættri heilsu dóttur sinnar kostar ekki aðeins tíma og mikla sorg, heldur einnig mikla fjármuni. Vinkonur hennar hafa því ákveðið að safna peningum til að létta henni byrðarnar. Fyrir þá sem vilja leggja hönd á plóg er reikningsnúmerið 1152 - 05 - 405356 og kennitala 210180-3629.

Tekið af www.visir.is 

 Endilega... margt smátt verður eitt stórt..

 Vinkonur Rögnu eru einnig að selja klóstett pappír til styrktar henni. Endilega hafið samband við mig ef að þið viljið kaupa klósettpappír. Bryndís systir og vinkonur hennar eru að reyna að aðstoða hana með því að selja pappírinn.

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.10.2007 11:09:08 / bheida

Shit, hvað á ég að gera????

Kennarinn er gjörsamlega að drepa mig hér úr leiðindum.............................................................................................................................................................................................................

Maður verður bara svoldið mikið þreyttur á þessu rugli....

Búin að skoða allt á netinu...... meira segja það óáhugaverða...

Djöfull eiga þetta eftir að vera langar 42 mín til viðbótar....


» 5 hafa sagt sína skoðun

02.10.2007 10:38:19 / bheida

Bloggerí blogg...

Getur það verið að ég er í skólanum??  jams víst að ég er að blogga þá er ég pottþétt þar. :)

Veikindi hjá englunum mínum... Ekki svo spennandi, Alexander Diego byrjaði á því að fá hita og svo þegar honum batnaði þá veiktist Katrín Klara og svo núna í gær Þórey Elírós... Litlu greyin :(  

Núna eru fullt af verkefnum í skólanum sem ég er að vinna að, auk þess að mæta í vinnu. Ætla reyndar að hætta að vinna fljótlega... þetta gengur ekki alveg hjá mér að púsla þessu saman....

Það er farið að styttast í Prag :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.09.2007 10:45:45 / bheida

Nýr dagur, ný tækifæri, ný færsla

Jæja, núna er ég í tíma... málþroski og málörvun.... er ekki að nenna að vera hérna...

Byrjum á því mikilvægasta:

 Helder!

Innilega til hamingju með afmælið :) 26 ár, er ekki neitt.. samt orðin þriggja barna faðir og giftur... hehe..

 Nú er helgin að fara að koma og það er brjálað að gera hjá mér...

  • Kíkja í heimsókn til Helder og gefa honum afmælisgjöf.. ætla að kaupa handa honum bók (veit að hann les þetta ekki strax)......
  • Fara í heimsókn til Foreldra minna í Njarðvík.
  • Horfa á fótbolta
  • Læra, læra og læra.... ógeðslega mikið eftir á.
  • Slaka á.
  • Horfa á meiri bolta
  • Reyna að hitta á Tótu systir og láta hana hafa tilboðið í tryggingar.
  • Sækja skattkort og fara með til Birtings
  • Læra, læra og læra... ennþá meira...
  • Hafa það kósý :)

Þetta verður sko púsluspil.. híhí...

Upp á síðkastið hef ég verið að skrópa mikið í skólanum.... úps og vinna meira.. Búin að sækja um námslán hjá LíN. líst bara vel á það.. fæ 82 þús kall fyrir per mánuð.. ég ætla að geyma þessa peninga til að eiga upp í útborgun á íbúð... langar að reyna að kaupa mér... :)

Styttist í Prag.....

En verð að fara... ætla að bögga Eyrúnu og Hrafnhildi meira.... (á msn)....  

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.09.2007 09:35:21 / bheida

Hvað er að frétta ??

Hmmm....... ...... ...... .....

 Er alveg tóm... hvað segir fólk á svona bloggum??  

Okley... maður er náttúrulega alltaf í skólanum..... ræktinni.... vinna smá og taka til (Loftur er sóðinn minn)... hehe...

Mér langar svoldið í vellaunaða skúringavinnu... held að það sé auðveld vinna með skóla.. hvað heldur þú??

Um daginn ákvað ég að prófa hrærivélina mína og bakaði köku... Kakan sjálf heppnaðist vel en kremið var ógeð.... samt var kakan borðuð með bestu lyst...

Svo í fyrradag ákvað ég að prófa blandarann.. bjó mér til Boozt með jarðarberjum, peruskyri, banana og klaka... það vildi ekki betur til en að kannan brotnaði... Svo ég náttla fór með henni mömmu í Ormsson til að fá nýja.... þori varla að nota hana, hún gæti brotnað.

Hvað þýðir núna? Ég hefði talið það vera eitthvað sem ætti að eiga sér stað… Ég hafði samband við 365 (sýn) á mánudag vegna Dv sem átti að fylgja áskriftinni minni… mér var sagt að það átti að hringja í mig eftir kl 15… ég beið og beið og svo í gær, miðvikudag ákvað ég að hringja í þá… Mér var sagt að það yrði hringt í mig núna… ég beið í 3 klst og hringdi svo aftur og spurði sakleysislega hvað núna þýddi… Greyið konan sagði mér að það væri núna, hélt ég ekki.. Hún sagði mér að strax yrði hringt í mig, að hún myndi láta vita að það væri komin ítrekun.. Svo liðu mínúturnar og þegar þær voru orðnar 40 var loksins hringt í mig …. Loksins… símtalið tók heilar 5 mín og var alls ekki flókið…. Af hverju var ekki búin til tími fyrir mig fyrr??? Ég þoli ekki 365 – bara okur…. Þetta er ekkert nema þjófnaðarstarfsemi hjá þeim með engri þjónustu við kúnnann…Um leið og ég get geymt gervihnattadisk segi ég skilið við 365.. Fuck 365 og þeirra viðskiptahætti..

Kennarinn talar og talar.... stundum finnst mér hann fara út fyrir efnið og týni honum.. það er samt allt í lagi af því að ég leita bara að honum og finn hann alltaf aftur.. þó svo að það líði smá tími eins og núna :)

Verð að halda leitinni áfram.. umræðan er eitthvað um að ná sér í ís... hverju tengist ísinn??? 

 Með kveðju

Begga Heiða


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.08.2007 00:20:10 / bheida

Skólinn byrjaður !!!

Jæja people.. þá er skólinn byrjaður... jýbbí eða þannig...

Ég er strax farin að bíða eftir næsta frii.. hvenær verður það???

 Í dag fór ég að versla... maður þarf að eiga allt í eldhúsið... þó svo að maður noti það ekki oft.. hehe.. við Loftur eigum eflaust allt núna... Ég sem sagt keypti matvinnsluvél með blandara og hrærivél... Á ég að fara að baka??? jamm... one day... someday...

 Ég er byrjuð í nýrri vinnu... hjá Birting... símasölu... fyrsti dagurinn var í dag og ég stóð mig vel.. var með tvær sölur sem er mjög gott...

 En verð að fara... ætla að rífa nýju tækin mín upp úr kössunum.. kannski að ég fari að spara svo bara... alltaf að eyða pening... reyndar þá var þetta fjárfesting... Hrærivélin var fjarfesting í að fitna en blandarinn í að grennast... hvort á ég eftir að nota meira??? Geri skoðunarkönnun um það.. hehe..

 

see ya...


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.08.2007 19:38:11 / bheida

Snilldar rithöfundur !!!!!!

 

Hæ fólks!!!

 Mæli með að allir lesi söguna um Jens og Co... og byrji á fyrsta hluta.. skemmtileg og spennandi saga.... http://sirrys.blog.is/blog/sirrys/

 

Ég bíð spennt eftir næsta hluta......

 

Höfundur Jens og Co er engin annar en Sirrý sig. sem nýlega vann 3 sæti í smásagnasamkeppni nýs lífs auk þess að önnur saga eftir hana var birt í smásagnabókinni... Með haustinu kemur svo út bók eftir hana sem heitir í gegnum rifurnar...

mæli með að allir kynni sér þennan einstaka og skemmtilega rithöfund sem nær að heilla lesandann með skemmtilegum lýsingum.  Sirrý sig. er án efa besti rithöfundurinn að mínu mati... :)


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8